Nýjast diskur herberts

Nýtt upphaf inniheldur 11 stórgóð lög með grípandi og sterkum melódíum. Herbert vann plötuna í samvinnu við nokkra af okkar þekktustu tónlistarmönnum, þar á meðal Gunnlaugi Briem, Friðriki Sturlusyni, Þóri Úlfarssyin og Stefáni Má Magnússyni. Platan hefur að geyma lög eins og Eilíf ást, sem Herbert flutti í undankeppni Eurovision, Camilia, Sumarið er stutt, Komdu með og Svíf í draumaheim.


CD og DVD Flakkað um ferilinn

Í tilefni af 40 ára starfsafmæli tónlistarmannsins Herberts Guðmundssonar, kemur nú út langþráður tvöfaldur safndiskur með 20 af þekktustu lögum hans og 20 myndböndum. Lögin hafa verið endurtónjöfnuð og sett í sparifötin. Smellir eins og Svaraðu, Hollywood, Time, Eilíf Ást, I believe in love og að sjálfsögðu megasmellurinn ódauðlegi Can‘t walk away ásamt fleiri góðum perlum frá ferli tónlistarmannsins. Góð gjöf sem kemur öllum í gírinn, eins og Hebba einum er lagið. Útgefandi HG Hljómplötur - dreifing Sena